Brostinn Strengur-文本歌词

Brostinn Strengur-文本歌词

Lay Low
发行日期:


Stjarna björt á heiðum himni bláum
hún mig töfrum batt á allar lundir
Eins og barn ég stóð á stalli lágum
starði frá mér numin margar stundir

Þráði ég hana mitt í dagsins draumi
dáði ég hennar ljóma í húmsins veldi
Hóf hún mig frá heimsins glysi og glaumi
gaf mér styrk á mörgu svölu kveldi

Svo kom hret, ég sá hana ekki lengur
Sorgin fyllti hjartað þungum trega
Var sem brysti hörpu stilltur strengur
Stjörnunnar ég sakna ævinlega

Poem: Hugrún
Song: Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir